Ég heiti Stefán Andri og er orðinn 1 árs :D


Nýjar myndir í Apríl, Maí og Júní :Þ

Ég er lítill Prins sem lét loksins sjá mig þann 30.08.07 heilum 10 dögum á eftir áætlun á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Ég var 3.440 gr (tæpar 14 merkur), 50 cm og FULLKOMINN.

Mamma mín heitir Guðrún Ásbjörg Stefánsdóttir (´83) og er Hjúkrunarfræðingur. Pabbi minn heitir Björn Fannar Hafsteinsson (´80) og er Rafvirki. Við littla fjölskyldan ætlum að vera á Akureyri a.m.k. í ár í viðbót ;)

Ég er fyrsta barnabarnið í móðurfjölskyldunni en 6. barnabarnið í föðurfjölskyldunni og á því fullt af flottum frændsystkynum að leika við. Mikill spenningur og eftirvænting ríkir eftir komu minni en þó finnst mömmu og pabba það stundum erfitt hvað fjölskyldan er langt í burtu.

Okkur langar til þess að biðja þá sem fá lykilorðið okkar að halda því út af fyrir sig =)






Elsku mamma og pabbi!

Ég er með svo litlar hendur
ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni

Fæturnir á mér eru svo stuttir
farðu hægar svo ég geti fylgt þér eftir

Ekki slá á hendurnar á mér þegar
ég snerti eitthvað fallegt
ég skil það ekki

Horfðu á mig þegar ég tala við þig
þá veit ég að þú ert að hlusta

Ég hef viðkvæmar tilfinningar
ekki vera alltaf að skamma mig

Leyfðu mér að gera mistök
án þess að mér finnist ég vera vitlaus

Ekki búast við því að myndin sem ég teikna
eða rúmið sem ég bý um verði fullkomið
elskaðu mig fyrir að reyna

Mundu að ég er barn, ekki fullorðin vera
stundum skil ég ekki það sem þú segir

Ég elska þig svo mikið
elskaðu mig bara fyrir að vera ég
ekki fyrir eitthvað sem ég geri



MAMMA ER KONAN

Mamma er konan sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn
fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og
ástúð sem lítið barn þarf á að halda.
Þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsa
meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum
fötum, og laga til í herberginu sínu
leyfir mamma það ekki því hún er svo
vön að hugsa vel um barnið sitt.
Mamma er alltaf til staðar með
út rétta hjálparhönd þegar á þarf að halda,
þerra tárin þegar það er leiðinlegt og gleðjast
með manni þegar gaman er að vera til.


MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI!!!!



PABBI ER MAÐURINN

Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að
það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður.
En það tekur hann bara nokkra daga að komast
niður á jörðina aftur.
Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað
sofið alla nóttina og kúkað í klósettt eins og
annað fólk.
Samt veit hann allt!! svo þegar maður verður
aðeins eldri og það er hægt að fara að leika
við mann og kenna manni ýmislegt finnst
honum rosa gaman.
Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar
á þarf að halda.

PABBI ER BESTI MAÐUR Í HEIMI !!!!!!!



Stjörnumerkið mitt er Meyja
23. Ágúst - 22. September.

Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki óliklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.

Barnalandsfélagar

Andrea Ýr og Mikael Örn

Anna Rakel og Huldís Hlín

Aron Geir

Benidikt Kári og Markús Máni

Bergdís Lilja

Birta María, Sigríður og Jóhann Króknes

Bjartur Vignisson

Dagný Lind og Andri Fannar

Egill Már, Trausti Gabríel og Ævar Breki

Hildur Sif

Hjálmar Helgi

Ingvar Helgi

Kári Gunnar

Kolbrún María

Ólafur Kristinn

Veigar Bjarki

Þú ert gestur nr. 35852